Fyrir sjúklinga
Hér eru nokkrar gagnlegar upplýsingar fyrir sjúklinga
Vegna tanndráttar / Skurðaðgerðar á tannholdi / Skurðaðgerðar á rótarenda / Ísetningar tannplanta / Annarra skurðaðgerða í munni:
Eðlilegt telst að verkja verði vart þegar deyfing minnkar u.þ.b. klukkustund eftir aðgerð. Verkir eru yfirleitt mestir fyrst en minnka svo smám saman. Á öðrum eða þriðja degi er ástandið alla jafn orðið skaplegt. Hafi tannlæknirinn þinn ávísað verkjalyfjum geturðu tekið þau, samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum.
Hafirðu ekki fengið ávísað verkjalyfjum og verkir eru til ama má fá verkjalyf í apótekum sem ekki eru lyfseðilsskyld s.s. parasetamól og íbúfen. Þessi lyf, sérstaklega ef þau eru tekin saman, gefa ágæta verkjastillingu. Fáðu leiðbeiningar um inntöku þessara lyfja og upplýsingar um hámarksskammta í apótekinu eða á ábyrgum netsíðum. Fáirðu mikla og langvarandi verki skaltu leita til tannlæknis.
Blæðing
Svolítil blæðing og blóðlitur á munnvatni telst eðlilegt á fyrsta degi. Ef blæðing er meiri eða viðvarandi má reyna að þrýsta á sárið með grisju eða bíta á grisju í 20 mínútur. Þrýstingur stöðvar flestar blæðingar. Forðast skal að skola munninn mikið, sjúga eða sleikja sárið. Ekki drekka með því að sjúga um rör. Gott er að hvílast með hátt undir höfði og forðast áreynslu. Ef þrýstingur og hvíld duga ekki til að stöðva blæðingu skal leita til tannlæknis.
Flestir bólgna eitthvað eftir tanndrátt, sumir mikið. Mar er óalgengara en telst þó vanalegt. Eðlilegt er að bólga aukist fyrstu 2-3 dagana eftir aðgerð og getur jafnvel valdið því að erfitt verði að opna munninn alveg. Draga má úr bólgunni með bólgueyðandi lyfjum, s.s. íbúfen. Ennfremur reynist vel að nota kælipoka fyrstu klukkustundirnar eftir aðgerð. Þá er kælipokinn settur á bólguna í 15 mínútur, þá hvílt í 15 mínútur og þannig koll af kolli.
Bólga og mar
Bólga og bjúgur er oft mestur að morgni eftir að þú hefur legið lárétt/ur næturlangt. Sá bjúgur sígur að mestu burt eftir að farið er á stjá. Mar getur komið út á húð og verið í öllum regnbogans litum en hverfur með tímanum í þessu tilfelli eins og annað mar. Ef bólga er ekki að gefa sig á 4. eða 5. degi skal leita til tannlæknis.
Tannlos og tannkul
Tennur sem liggja að aðgerðarstað geta stundum virst ofurlítið hreyfanlegar og kul í þessum tönnum er líka nokkuð algengt. Alla jafna gengur þetta til baka á nokkrum dögum eða vikum.
Munnhirða
Skolið munninn sem minnst fyrsta daginn. Næstu daga er ráðlagt að skola með volgu vatni, gjarnan saltvatnsupplausn. Hreinsið tennurnar, en snertið ekki sárið sjálft með tannbursta. Munið að góð munnhirða er nauðsynleg eðlilegri græðslu sára.
Eftir aðgerð eða tanndrátt skyldi:
Forðast mikla áreynslu
Ástunda góða munnhirðu, bursta þarf tennur eins og vanalega nema hlífa aðgerðarstaðnum.
Gott er að nota munnskol sem inniheldur klórhexedín (t.d. Corsodyl)
Ekki borða fyrstu klukkutímana eftir aðgerð og neyta mjúkrar fæðu fyrstu dagana á eftir. - Gæta vel að að nærast eðlilega og taka inn vökva (2 lítrar á dag)
Ef sýklalyfi var ávísað skal gæta þess að taka það samkvæmt leiðbeiningum á umbúðum
Hvað er glerungseyðing?
Það er kallað glerungseyðing þegar glerungur tannarinnar eyðist/leysist upp fyrir áhrif sýru.
Tönnin slitnar þá hraðar og öðru vísi en eðlilegt getur talist.
Glerungseyðing er ekki það sama almennt er kallað tannskemmdir.
Þegar um er að ræða tannskemmdir eru bakteríur og sýra frá þeim að verki
Þegar um er að ræða glerungseyðingu er vissulega líka um sýru að ræða en hún kemur annarsstaðar frá.
Hvað veldur glerungseyðingu?
Sýran sem veldur glerungseyðingu kemur oftast úr því sem borðað/drukkið er en sýra getur líka komið upp neðan úr maga
Súrir drykkir og súrir ávextir geta valdið glerungseyðingu.
Hversu oft þessa er neytt skiptir a.m.k. jafn miklu máli og hversu mikið magnið er.
Sýran sem glerungseyðingunni getur valdið getur líka borist upp í munn neðan úr maga s.s. þegar um er að ræða bakflæði eða bulemiu.
Einkenni glerungseyðingar
-
Glær bitkantur tanna
-
Tönn gulnar þegar glerungur þynnist og tannbein sést í gegn
-
Hratt slit á tönninni sjálfri, , fyllingar taka að standa uppúr
-
Tennur verða viðkvæmar fyrir hita, kulda og sætindum.
Meðferð
-
Taka á bulemiu/ bakflæði ef það er orsökin
-
Takmarka neyslu súrra drykkja/matar
-
Skola munninn með vatni eftir að súrra drykkja er neytt
-
Nota mjúkuan tannbursta.
-
Ekki bursta strax eftir að súrra drykkja hefur verið neytt
-
Nota flúor (tannkrem/skol) til að stuðla að endurkölkun tannvefs
-
Tannviðgerðir á ofurviðkvæmum stöðum
-
Endurbygging illa farinna tanna
-
Orsakir
Skert munnvatnsframleiðsla með tilheyrandi munnþurrki getur stafað af ýmsum ástæðum:
-
Ójafnvægi í vökvabúskap líkamans
-
Lyfjataka (td. ýmis geðlyf, magalyf, sjóveikilyf,ofnæmislyf, blóðþrýstinglækkandi lyf, asmalyf, , þvagræsilyf og fleiri
-
Sjúkdómar í munnvatnskirtlum
-
Krabbameinsmeðferð, lyfja-og/eða geislameðferð
-
Sjögrens-heilkenni
-
Sykursýki
Einkenni
-
Magn og gæði munnvatns minnka, minna magn , seigt og þykkt munnvatn
-
Tungan “límist”í góminn
-
Sviði í munni
-
Erfiðleikar við tal, að tyggja og að kyngja
-
Breyting á bakteríuflóru munns, tannskemmdir og slímhúðarsjúkdómar
-
Erfitt að nota gervitennur
Það getur verið erfitt að “lækna” munnþurrkinn en ýmislegt er hægt að gera tilverndar tönnum og til að manni líði betur
Hvað er til ráða?
Til verndar tönnum
-
Góð munnhirða er nauðsynleg sem aldrei fyrr, tannbursti, tannþráður og millitannabursti.
-
Ýmis munnskol (td Biotene).
-
Xylimelts, töflur sem "límast uppí góm og viðhalda raka um stund. Gott fyrir nóttina þegar munnvatnframleiðsla minnkar enn meira.
-
Flúortannkrem (“háskammta-flúortannkrem”, Duraphat tannkrem).
-
Sumum reynist best tannkrem án sápuefna (td Zendium, Biotene)
-
Flúorskol
-
Flúorpenslun hjá tannlækni
Til að auka munnvatnsframleiðslu
-
Nota sykurlaust tyggigúmmí (td Extra eða V6), gjarnan með flúor (Fluorette)
-
Sykurlausar munnsogstöflur (td Profylin, Xerodent, Hap+ )
-
Borða mat sem þarf að tyggja
-
Breyta lyfjagjöf
Til að slá á einkenni
-
Skola munninn oft með vatni
-
Nota ýmsar “munnþurrksvörur” sem fást í apótekum s.s. gel, munnúða og krem
-
Nota varasalva eða vaselín á varir
Hvað á að borða?
-
Mat sem þarf að tyggja, forðast þó hart,þurrt, kryddað og súrt
-
Mat sem inniheldur mikinn vökva
-
Borða oft og lítið í einu
-
Drekka fyrir máltíð
Ekki nota sykrað sælgæti,gosdrykki eða safa í þeim tilgangi að laga munnþurrk
Afar mikilvægt er að láta tannlækni fylgjast vel með tannheilsu þinni ef þú átt við munnþurrk að stríða. Tennur geta skemmst illa á undra stuttum tíma ef ekki er vel á málum haldið.
-
Almennt
Uppgötvun tannlýsingareiginleika efnisins karbamíðperoxíðs hefur gert það að verkum að tannlýsing er einfalt, hættulaust og ódýrt ferli í dag. Áður var tannlýsing einungis framkvæmanleg í tannlæknastólnum. Þótt mjög sterk efni væru notuð tók ferlið langan tíma og var því tiltölulega dýrt. Nú er unnt að stunda tannlýsingu í rólegheitunum heima hjá sér, þegar manni hentar.
Karbamíð peroxíð hentar ágætlega til að lýsa tennur sem hafa dökknað vegna neyslu venjulegra matvæla, s.s. tóbaks, tes, kaffis, gosdrykkja, rauðvíns og jafnvel vegna sýklalyfja (Tetracyklins). Venjulega má búast við að það taki 2 vikur að ná viðunandi árangri, en ef liturinn stafar af sýklalyfjum getur ferlið tekið töluvert lengri tíma.
Hve lengi nota ég efnið?
Best er að byrja á því að nota efnið einu sinni á dag samfellt í a.m.k. 2 ½ klst. Í flestum tilvikum er óhætt, ef engin óþægindi koma fram, að auka notkunina eftir uþb 5 daga og nota þá efnið tvisvar á dag í amk 2 ½ klst í senn. Virkni efnisins er mest fyrst; eftir 2 ½-3 klst er hún um 50% af því sem hún er í upphafi og eftir 5 klst er hún nánast uppurin. Þeir sem geta hugsað sér að sofa með lýsingarbakkann ná gjarnan fyrr árangri því að þá eru munnhreyfingar og munnvatnsframleiðsla minni og efnið berst síður burt.
Athugið! Þeir sem hafa tilhneigingu til tannakuls og viðkvæmni í tönnum þurfa að fara varlegar í sakirnar en hér að ofan greinir.
Takið eftir! Notið efnið ekki umfram það sem kemur fram í þessum leiðbeiningum, vegna þess að of áköf notkun getur orsakað ertingu og jafnvel efnafræðilegan bruna (ætingu) á slímhúð. Nauðsynlegt er að skipta um fyllingar ef einhverjar lekar fyllingar eru til staðar, eða setja nýjar ef sprungur/skemmdir eru í tönnunum. Þar er venjulega um að ræða fyllingar sem þarf hvort eð er að skipta um vegna elli og leka, eða skemmdir sem þarf hvort eð er að gera við.
ATHUGIÐ! Ef vart verður við einhver óþægindi við notkun efnisins, hættið henni strax og hafið samband við tannlækni.
Hvernig fer ég að?
Góð regla er að bursta ávallt tennurnar fyrir notkun tannlýsingarefnis. Eftir notkun er æskilegt að skola vel með vatni og loks flúor áður en burstað er. Þetta er vegna þess að örþunnt ysta lag á tönninni mýkist við snertinguna við lýsingarefnið. Flúorinn herðir það aftur, því er mikilvægt að nudda tennurnar ekkert fyrr en þær hafa komist í snertingu við flúor.
Flestir gera þau mistök að hrúga of miklu af efninu ofan í glæru bakkana. Gætið þess að ekki þarf að setja meira af efninu fyrir hverja tönn en nægir til að hylja framhlið hennar. Kúla sem er 2-3 mm í þvermál ætti að duga. Annars er auðvelt að fylgjast með því hvernig efnið “klessist” á tennurnar þegar maður setur glæran bakkann yfir þær og meta þá hvort nægilega mikið af efninu sé til staðar. Athugið auk þess að ekki hefur neinn tilgang að lýsa fyllingar eða postulínskrónur, sóið því ekki efninu í slíkt.
Athugið að geyma vel módelin af tönnunum svo endurgera megi bakkana ef þeir týnast eða skemmast. Það kostar miklu minna heldur en ef gera þarf allt frá grunni.
