Um okkur
Á tannlæknastofunni vegmúla starfa 5 tannlæknar, sérfræðingur í tannhaldslækningum, tanntæknir og tannsmiður ásamt þaulreyndu aðstoðarfólki.
Tannlæknar

Anna Þóra Alfreðsdóttir
TANNLÆKNIR
Anna Þóra Alfreðsdóttir lauk prófi frá tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 2016 og slóst í hópinn í Vegmúla í byrjun árs 2024. Áður starfaði hún á Tannlæknastofunni á Háteigsvegi og Tannlæknastofu á Garðatorgi. Hún starfaði einnig á bráðavakt tannlækna í mörg ár.
Anna Þóra hefur bætti við sig námi í tannréttingaskinnum og lauk prófi í því frá City of London Dental School árið 2022 og vinnur mest með Ordoline tannréttingarskinnur í dag.

Arnar Geir Rúnarsson
TANNLÆKNIR
Arnar Geir lauk námi í tannlækningum frá Háskóla Íslands árið 2010 og starfaði fyrst sem tannlæknir í 3 ár í Reykjavík og á Akranesi en fluttist svo til Stokkhólms og starfaði þar frá 2013 til 2024.
Arnar flutti aftur heim til Íslands 2024 og hefur starfað hjá Tannlæknum Vegmúla síðan. Arnar sinnir almennum tannlækningum barna og fullorðinna ásamt tannplantaísetningu og ýmsum minniháttar skurðaðgerðum.

Elín S. Wang
TANNLÆKNIR
Elin Svarrer Wang er fædd í Færeyjum en fluttist til Íslands til að fara í háskóla. Hún útskrifaðist sem tannlæknir frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands í 1998 og hefur unnið á Tannlæknastofunni Vegmúla frá útskrift. Meðfram þeirri vinnu sinnti hún um tíma tannlækningum fólks með sérþarfir á Landspítalanum í Færeyjum. Hún hefur mikla reynslu á því sviði og er nú formaður FUMFS, Félag um munnheilsu fólks með sérþarfir.

Gunnar Rósarsson
TANNLÆKNIR
Gunnar lauk B.S. prófi í líffræði frá HÍ 1980 og prófi frá Tannlæknadeild H.Í. 1988.
Hann hefur starfað sem almennur tannlæknir í Reykjavík og víðar hérlendis síðan. Hann hóf störf hjá Tannlæknum Vegmúla 1994.
Gunnar hefur stundað kennslu við Tannlæknadeild H.Í. frá 2017. Frá því vorið 2022 sem aðjúnkt.
Gunnar stundar allar almennar tannlækningar barna og fullorðinna. Einnig framleiðslu fastra og lausra munngerva, sem og almennar tannhalds-/tannholdslækningar.

Ingólfur Eldjárn
TANNLÆKNIR
SÉRGREIN: TANNHALDSLÆKNINGAR
Ingólfur Eldjárn lauk prófi frá Tannlæknadeild Háskóla Íslands árið 1988. Starfaði fyrst sem tannlæknir á Húsavík og Akureyri.
Stundaði framhaldsnám í Toronto og síðar í Gautaborg. Útskrifaðist með sérmenntun í tannhaldslækningum (tannholdslækningum) 1995 frá Háskólanum í Gautaborg.
Var kennari og síðar lektor við Tannlæknadeild Háskóla Íslands í rúman aldarfjórðung
Ingólfur hefur frá 1995 stafað sem sérfræðingur í tannhaldslækningum í Vegmúla 2 en sinnir jafnframt almennum tannlækningum, tannplantaísetningum og ýmsum skurðaðgerðum.
Starfsfólk

Elísabet Ó. Helgadóttir
aðstoðarmaður tannlæknis

Harpa Sól Sigurðardóttir
aðstoðarmaður tannlæknis

Herta Keli
TANNTÆKNIR

Hulda
tannfræðingur

Signý Eir Guðmundsdóttir
aðstoðarmaður tannlæknis OG TANNSMIÐUR

Sigríður Guðlaug Halldórsdóttir
móttökustjóri

Sigríður Soffía Jónasdóttir
aðstoðarmaður tannlæknis

Tanja Íris Vestmann
aðstoðarmaður tannlæknis