top of page
588 1920

The purpose of the following template is to assist you in writing your accessibility statement. Please note that you are responsible for ensuring that your site's statement meets the requirements of the local law in your area or region.

*Note: This page currently has several sections. Once you complete editing the Accessibility Statement below, you need to delete this section.

To learn more about this, check out our article “Accessibility: Adding an Accessibility Statement to Your Site”.

  • Sérstök áhersla á tannlækningar fólks með sérþarfir
    Elín.jpg

    Elin Svarrer Wang, formaður FUMFS, Félag um munnheilsu fólks með sérþarfir.

    Hjá Tannlæknum Vegmúla leggjum við áherslu á góða aðstöða fyrir fólk með sérþarfir. 

    Í húsinu er lyfta þar sem flestallir hjólastólar komast fyrir. 

    Suðurlandsbrautarmegin eru algjörlega sjálfvirkar dyr (það er 1. hæð/kjallarinn eða portið sem snýr að Suðurlandsbraut) en Vegmúlamegin (2. hæð) eru dyr sem þarf að opna með handafli vegna vindaaðstæðna þar. Endilega bendið bilstjórum á þessa tvo innganga eftir því hvor hentar ykkur betur.

     

    Bílastæði fyrir fatlaða er Suðurlandsbrautarmegin, næst portinu. 

    Hjá okkur á stofunni er líka sjúklingalyfta með segli ef lyfta þarf einstaklingi úr hjólastól yfir í tannlæknastól. 

     

    Á staðnum erum við með möguleika á að veita meðferð í glaðlofti en ef einstaklingur vegna fötlunar sinnar ekki ræður við tannlækningar vakandi, höfum við aðgengi að svæfingum á Landspítalanum við Hringbraut að jafnaði 1-2 daga í mánuði.

     

    Allir tannlæknarnir í Vegmúla sinna tannlækningum fólks með sérþarfir. 

    Elín S. Wang, tannlæknir sinnir þessum hópi þó mest. Hún er nú formaður Félags um munnheilsu fólks með sérþarfir (FUMFS), sem er íslandsdeild norræns félags á þessu sviði (sjá vefsíðu www.nfh-norden.org). Félagið skipuleggur reglulega ráðstefnur og árið 2027 verður NFH-ráðstefna á Íslandi. 

  • Hversvegna eru teknar röntgen myndir?

    Oft spyrja þeir sem þora að heimsækja tannlæknastofur, hvers vegna þurfi sífellt að vera að taka Röntgenmyndir.

    Stysta hugsanlega svarið er að 1 mynd segir meira en mörg þúsund orð. Röntgengeislar eru sama eðlis og blessuð sólarbirtan, hlýjan sem stafar frá ofninum og örbylgjan sem hlýjar skyndiréttinn. Bara aðeins kröftugri. Þetta eru allt rafsegulbylgjur. Sama eðlis allt saman. Nema af mismunandi tíðni.  Röntgen sér í gegnum okkur, skaðar erfðaefnið. Það gerir einnig náttúruleg grunngeislun. Enginn fær hana flúið. En er röntgengeislunin til skaða eða gagns?

     

    Nýjustu rannsóknarniðurstöður sýna óumdeilanlega að gagnsemi röntgenmyndgreiningar vegur margfalt meira en hugsanleg skaðsemi þeirra. Enda eru röntgentæki í dag hönnuð þannig að geislunin fer einungis þangað sem hennar er þörf. Ólíkt því sem áður var. Þá fór hún um víðan völl.

     

    Lang flest Röntgentæki á Íslandi eru smámyndaröntgentæki á tannlæknastofum, þau eru sennilega margfalt fleiri en önnur tiltæk geislandi myndgreiningartæki, sem er flest að finna í hinu opinbera heilbrigðiskerfi. Samt er samanlögð geislun tannlæknatækjanna  aðeins um 3% af heildargeisluninni sem þjóðin framleiðir.

     

    Allar lífverur Jarðar (og víðar?)  hafa verið baðaðar í grunngeislun alheimsins frá upphafi vega. Því aðeins er lífríkið enn í fullu fjöru að það hefur þróað með sér  náttúrulegar græjur til að laga þær skemmdir á erfðaefninu sem geislavirkni veldur. Nýjustu rannsóknir leiða, af töluverðu öryggi, í ljós að flóknustu og orkumestu myndgreiningarrannsóknir sem beitt er í læknisfræði skammti aldrei það mikla geislun inn í mannslíkamann að viðgerðargræjurnar sem verja erfðaefnið okkar ráði ekki við að lagfæra skaðann. Tannlæknar framleiða aðeins 3% af þessari geislun. Nútíma tölvutækni, hefur gert það mögulegt að nota æ minni geislun til að ná sama upplýsingamagni út úr hverjum geislaskammti. Líka út úr tannröntgensmámyndum.

     

    1 tannröntgensmámynd jafngildir u.þ.b. hálftíma upp í kannski 12 tíma af grunngeislun. Sem skiptir eiginlega engu máli í stóra samhenginu. Sá/sú sem mætir árlega til tannlæknis þarf að þola u.þ.b. 2  tannsmámyndamyndaröntgentökur á ári. Það bætir í mesta lagi ígildi eins dags grunngeislun við árið. Sem er 0,3%.

     

    Það er ekki áhyggjuefni. Man einhver eftir Chernobyl? 

    Svo kíkt sé á hinn endann, það mesta sem heilbrigðiskerfið býður upp á, sumsé CT skann af hrygg frá mjaðmagrind og upp í banakringlu þá erum við að höndla með 2000- 4000 sinnum meiri geislun heldur en 2 röntgensmámyndir á ári bjóða uppá.

    Nánar um röntgengeisla

    Röntgengeislar eru ómissandi til sjúkdómsgreiningar í  nútíma heilbrigðisþjónustu.  Hafa verið það allt frá árinu 1896 þegar fyrsta röntgenmyndin var tekin af brotnum úlnlið óheppins skautahlaupara í BNA. Nú ryðjast inn ný tækni/nýjar aðferðir til myndgreiningar svo sem segulómun (Magnetic resonance imaging/MRI), jáeindaskönnun (Positron emission tomography/PET), stakeindaskönnun (Single-photon emission computed tomography/SPECT) og gammaljósmyndun (Gamma photography/GP) svo dæmi séu tekin.

     

    PET og MRI  er aðeins nokkura áratuga gömul tækni. SPECT og GP eru rétt að slíta barnsskónum.  Með tilkomu tölva og gervigreindar hafa opnast sífellt nýjar víddir á sviði myndgreiningar ótrúlega hratt. Enginn sér fyrir endann á því. 

     

    Tannlæknar nýta sér jafnan eingöngu röntgentæknina, enda er hún elst, handhægust, einföldust og þar með ódýrust. Röntgentæki á tannlæknastofum skipta hundruðum. Flest eru einföld smámyndaröntgentæki, en tugir flóknari hátæknitækja, s.s. CBCT (Cone beam computed tomography) og OPG (Orthopantomogram) tæki er þar einnig að finna. Fer þeim ört fjölgandi. Yfirgnæfandi hluti röntgentækja á Íslandi eru smáröntgentæki á tannlæknastofum. Skv. starfsmanni geislavarna framleiða þau til samans aðeins um 3% af þeirri geislun sem framleidd er af íslensku þjóðinni. Lang mest af því framleitt í heilbrigðisgeiranum.

     

    Á Íslandi er einungis einn jáeinda/PET skanni. Hann var svo dýr að Íslensk Erfðagreining þurfti að gefa LSH hann. Pólitíkusarnir tímdu ekki að kaupa hann. Íslenska þjóðin var ekki nógu merkileg, að þeirra mati, til að eiga slíkt þarfaþing skilið. Skv lausl. könnun eru u.þ.b. 10-15 MRI tæki á landinu. Á LSH er 1 SPECT tæki og 1 gammamyndavél.  Hins vegar er víða til urmull röntgentækja af ótal gerðum. 

     

    Röntgengeislar eru rafsegulbylgjur, rétt eins og blessað sólarljósið, innrauðir hitageislar, útfjólublátt ljós, útvarpsbylgjur, örbylgjur, gamma geislar og svo mætti lengi telja.          

     

    Eini munurinn á þessum tegundum geisla er bylgjulengdin. Því styttri bylgjulengd, því orkumeiri geislar. Röntgengeislar eru með styttri bylgjulengd en sýnilegt ljós, þess vegna eru þeir nógu orkumiklir til að smjúga gegnum vefi líkamans, þannig að hægt er að taka myndir af innviðum hans.

     

    Rétt er að Röntgengeislar eru það öflugir að þeir skaða erfðaefni lífvera. Því eru þeir flokkaðir sem krabbameinsvaldur. Eins og raunar fjölmargt í umhverfi okkar. (Lífið er  lífshættulegt. Enginn lifir það af, þegar upp er staðið).

     

    Hins vegar hafa rannsóknir sýnt að gagnsemi Röntgengeisla við að greina sjúkdóma vegur margfalt upp áhættuna af því að fá krabbamein.   En þannig er nú, að náttúran sjálf hefur um alla eilífð „bombarderað“  lífríkið með geislun af ýmsu tagi, bæði öflugari og máttlausari en Röntgengeislunin er. Allan sólarhringinn alla daga, alls staðar. Þetta er svonefnd bakgrunns- eða grunngeislun (background radiation) sem ekkert á himni eða Jörð fær umflúið.  Þess vegna hafa allar lífverur, gegnum aldirnar, komið sér upp búnaði sem gerir við þann skaða sem geislun veldur á erfðaefninu. Ef við gætum flúið geislavirknina, þá værum við búin að þróa með okkur skynfæri svo við mættum forðast hana. En hvert gætum við farið? Hún er alls staðar. Semsé grunngeislun er ekki hættulaus. En óumflýjanleg er hún.

     

    Flestir verða mest fyrir grunngeislun af völdum radons. Lofttegundar sem myndast stöðugt í jarðskorpunni við geislavirkt niðurbrot þungmálma og stígur upp í andrúmsloftið þar sem viðnámið er minnst. Til eru kjallaraíbúðir þar sem uppstreymi radons er svo mikið að raunveruleg heilsuógn stafar af geisluninni, dvelji e-r þar langdvölum. 

     

    Önnur aðaluppspretta grunngeislunar eru geimgeislar (cosmic radiation), sem innihalda m.a. Röntgengeisla.en einnig langtum öflugri geisla eins og gammageisla, sem eru öflugastir allra geisla.

     

    Því hærra sem dregur frá yfirborði sjávar aukast áhrif geimgeisla, því lofthjúpur jarðar veitir býsna góða vernd fyrir þeim. En við sjávarmál er radonið ráðandi.

     

    Geimfarar, flugmenn og jafnvel þeir sem búa á hálendustu búsvæðum Jarðar, eru í tölfræðilega mælanlegri aukinni áhættu, á að fá krabbamein vegna geimgeisla en aðrir jarðbundnari einstaklingar. Þó er munurinn rétt við mörk þess að vera marktækur.

     

    Um það er deilt hvort lágskammta röntgengeislun, af þeim styrkleika sem beitt er í hvers konar læknisfræðilegri myndgreiningu  auki líkur á krabbameini yfirhöfuð. Þeir geislaskammtar séu undir þeim mörkum sem viðgerðarmekanismi erfðaefnis okkar ráði við. 

     

    Fara þurfi yfir vissan skammtaþröskuld geislunar til að skemmdir erfðaefnis verði varanlegar. Sá þröskuldur er nú talinn langtum hærri en þeir skammtar sem beitt er í læknisfræðilegri, hvað þá tannlæknisfræðilegri myndgreiningu.

     

    Þó er tekið fram að geislaþol barna gagnvart krabbameinshættu er um þriðjungur af þoli fullorðinna. Það ætti að hafa í huga þegar teknar eru ákvarðanir um röntgenmyndatökur barna. Forðast skal í lengstu lög að taka röntgenmyndir af barnshafandi konum, einkum fyrstu 20 vikur meðgöngu.

     

    Til fróðleiks og gamans má hafa þessar grófu viðmiðanir í huga:

    Geislun frá:

    1 tannröntgensmámynd jafngildir um 30 mín-24 klst grunngeislun, sem þýðir að 12 slíkar smámyndir árlega hjá tannlækni, bæta u.þ.b. 9 dögum af grunngeislun við árið. Sem er aukning um 2,5%. 1 mynd bætir við 0,2%. Sé allt með felldu er jafnan teknar 1-2 myndir á ári

     

    1 tannbreiðmynd (Orthopantomogram/OPG) jafngildir um 3-5 daga grunngeislun.

     

    1 CBCT ( Cone beam computed tomography) rannsókn jafngildir um 6-30 daga grunngeislun.

     

    1 CT „frá toppi til táar“ 30-320 dagar af grunngeislun.

  • Photo 2.9.2024, 12 55 42.jpg
    Er Ordoline fyrir þig?

    Ordoline réttir tennur með röð af nánast ósýnilegum sérsmíðuðum skinnum sem auðvelt er að fjarlægja. Þú skiptir um skinnu á eins til tveggja vikna fresti og tennurnar færast eftir því sem vikurnar líða, þar til þær hafa náð ákjósanlegri stöðu. Skinnurnar eru þæginlegar og þær sjást lítið. Hægt er að fjarlægja skinnurnar til að borða og bursta og hefur því lítil áhrif á daglegt líf.

    Hvernig byrja ég?

    Þú byrjar að koma í skoðun til að meta hvort skinnurnar henti þinni tannskekkju. Tekið er 3D skann af tönnunum, ljósmyndir og breiðröntgenmynd.

    Í framhaldi er gert meðferðarvideo sem sýnir hvernig tennurnar munu hreyfast.

    Meðferðartími er mismunandi milli tilfella og ekki hægt að meta nema þú komir í skoðun. 

    Fylltu út formið hér að neðan til að koma í skoðun. 

    ordoline.webp
    ordoline2.png

Þjónusta

Á Tannlæknastofunni Vegmúla starfa tannlæknar, tannfræðingur, tanntæknar og aðstoðarmenn. Stofan sinnir öllum almennum tannlækningum en leggur áherslu á tannhaldslækningar, implantaaðgerðir og tannlækningar fólks með sérþarfir.

Smelltu á viðgeigandi þjónustulið hér fyrir neðan fyrir frekari upplýsingar:

Photo 6.10.2024, 13 00 37.jpg

Bókaðu tíma

Hafðu samband í síma 588 1920, sendu okkur póst á mottaka@vegmuli.is eða fylltu út formið hér að neðan:

Hvaða þjónustu ertu að leita að?
Panta tíma í skoðun
Tilvísun
Panta tíma hjá:
bottom of page